MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Opið tímabundið fyrir umferð til suðurs úr Hrafnagilshverfi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hjaleid1
kaffid.is

Vegna gatnaframkvæmda innan Hrafnagilshverfis hefur verið opnað tímabundið á umferð inn og út úr hverfinu að sunnanverðu fram hjá Hrafnagilsbúinu. Þessu greinir Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri, frá á vef Eyjafjarðarsveitar.

Búast má við að þessi leið verði opin í einhverjar vikur meðan farið verður í lokafrágang gatna í hverfinu en því mun fylgja umtalsvert meira ónæði á næstu vikum þar til búið er að leggja nýtt malbik á Hrafnatröðina sem gengur gegnum allt hverfið.

Óhjákvæmilegt verður að útbúa nýjar hjáleiðir meðan undirbúningur er í gangi og á meðan á malbikun stendur. Verða leiðir þá merktar inn á kort og kynntar á vef Eyjafjarðarsveitar þegar þær liggja fyrir.

„Með þökk fyrir þá þolinmæði sem vegfarendur hafa sýnt meðan á öllum þessum viðamiklu framkvæmdum stendur,“ skrifar Finnur.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026