Í dag verður opið hús í Menntaskólanum á Akureyri fyrir nemendur í 10. bekk í grunnskólum og forráðafólk þeirra. Nemendur úr 9. bekk og forráðafólk eru einnig velkomin.
Það verður nóg um að vera en dagskráin hefst klukkan 16:30 með almennri kynningu á störfum Menntaskólans á Akureyri.
Í kjölfarið verður tónlistaratriði frá nemendum skólans, vöfflukaffi og ratleikur.
UMMÆLI