Opið fyrir umsóknir um styrki vegna Listasumars

Akureyrarbær hefur opnað fyrir umsóknir um styrki vegna viðburða á Listasumri 2026, sem fram fer dagana 25. júní til 18. júlí. Í tilkynningu segir að Akureyrarbær leiti að áhugaverðum, skemmtilegum og öðruvísi hugmyndum að viðburðum sem geta sett svip sinn á hátíðina.

Styrkirnir nema á bilinu 50.000 til 300.000 krónur og eru veittir til einstaklinga, lögaðila, listhópa, fyrirtækja og stofnana. Meginreglan er sú að aðgengi að viðburðum sé ókeypis fyrir gesti.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2026. Sótt er um á umsóknargátt Akureyrar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!