MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Opið fyrir tilnefningar til mannréttindaviðurkenningar Akureyrarbæjar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Mynd
naustahverfi, akureyri· kaffid.is

Akureyrarbær hefur auglýst eftir tilnefningum til mannréttindaviðurkenningar sveitarfélagsins á vef bæjarins. Þar segir að tilgangurinn sé að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis og mannréttinda í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Viðurkenningu geta hlotið:

Fyrirtæki/stofnanir sem hafa:

  • Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum
  • Unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
  • Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
  • Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum

Félög/félagasamtök sem hafa:

  • Sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum
  • Sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi mannréttinda
  • Gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundið áreiti eða kynferðislega áreitni innan félags
  • Veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttis- og mannréttindamál

Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttis- og mannréttindamálum eða unnið gegn staðalímyndum.

Einnig kemur til álita að veita hvatningarviðurkenningu vegna nýjunga sem stuðla að framgangi jafnréttis og mannréttinda í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Rökstuddum tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 5. apríl nk. í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar sem er aðgengileg hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026