Bæjarráð Akureyrarbæjar auglýsir á vef Akureyrarbæjar í dag eftir tilnefningum til mannréttindaviðurkenningar sveitarfélagsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis og mannréttinda í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Viðurkenningu geta hlotið:
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Fyrirtæki og stofnanir sem:
- Hafa skýra stefnu og áætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum.
- Vinna markvisst að því að brjóta niður staðalímyndir kynjanna.
- Hafa sett sér aðgerðaráætlun til að stuðla að framgangi mannréttinda.
- Gera virkar ráðstafanir til að fyrirbyggja kynbundna og kynferðislega áreitni á vinnustað.
Einstaklingar:
- Sem skara fram úr í vinnu að jafnréttis- og mannréttindamálum eða vinna gegn staðalímyndum.
Einnig kemur til álita að veita hvatningarviðurkenningu vegna nýjunga sem stuðla að framgangi jafnréttis- og mannréttinda í samræmi við mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Skilafrestur tilnefninga verður til og með 12. apríl n.k. Afhending viðurkenninga fer fram samhliða Vorkomunni á sumardaginn fyrsta þann 16. apríl.
Tilnefningum er skilað í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.










