Ölvaður maður var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri í gær eftir að hann datt af hestbaki. Greint var frá þessu á mbl.is í gær.
Þar er haft eftir lögreglunni á Akureyri að hestamaðurinn hafi hlotið minniháttar meiðsl við fallið og hafi fengið viðeigandi aðhlynningu.
Einnig kemur fram að maður hafi verið handtekinn á Akureyri um klukkan hálf 7 í gærkvöldi fyrir húsbrot og líkamsárás.
Maðurinn reyndi í annarlegu ástandi að ryðja sér leið inn í íbúðarhúsnæði og kýldi húseiganda hnefahöggi. Húseigandinn mun ekki hafa slasast alvarlega, en maðurinn var vistaður í fangaklefa í nótt.