Framsókn

Öllu starfsfólki sagt upp og NiceAir flýgur ekki í sumar

Öllu starfsfólki sagt upp og NiceAir flýgur ekki í sumar

Norðlenska flugfélagið NiceAir mun ekki hefja flug frá Akureyri á nýjan leik í sumar. Þá hefur öllu starfsfólki flugfélagsins verið sagt upp en 16 einstaklingar störfuðu fyrir NiceAir. Þetta staðfest­ir Þor­vald­ur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri NiceA­ir, í sam­tali við Mbl.

NiceAir tilkynnti í byrjun apríl að félagið myndi gera hlé á starfsemi sinni vegna þess að það missti eina af flugvélum sínum.

„Hvort að við ger­um það á óbreytt­um for­send­um eða breytt­um for­send­um eða ein­hverj­ir aðrir komi inn, þá er stóra málið það að við erum búin að sýna fram á að þetta er vit,“ seg­ir Þor­vald­ur aðspurður hvort hann telji vera meiri lík­ur en minni að NiceA­ir hefji aft­ur flug.

Hann bæt­ir við að góð nýt­ing hafi verið á flugi NiceA­ir til Kaup­manna­hafn­ar. Þá virðist einnig vera markaður fyr­ir flug til sól­ar­landa einu sinni í viku, allt árið um kring.

„En við höld­um að með því að geta farið til Bret­lands í framtíðinni þá muni viðskipta­mód­elið bara batna,“ seg­ir hann en nánar er rætt við Þorvald á vef Mbl.

Sambíó

UMMÆLI