MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ólína Einarsdóttir ráðin taugalæknir á SAk

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
674bead4-0f9e-4db7-b74a-8fedc6300b55
Ljósmynd: SAk· kaffid.is

Ólína Einarsdóttir hefur verið ráðin taugalæknir á Sjúkrahúsið á Akureyri. Ólína lauk læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. Á námsárunum starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akureyri og að námi loknu einnig á heilsugæslunni á Dalvík og á Hlíð.

Síðar flutti Ólína til Svíþjóðar og hóf sérnám í taugalækningum í Helsingborg. Frá ársbyrjun 2024 hefur hún starfað þar sem sérfræðingur í taugalækningum, bæði við deildarstörf og á göngudeild. Hún hefur sérstakan áhuga á MS og tók meðal annars þátt í uppbyggingu MS-teymis og göngudeildar í Helsingborg árið 2023.

„Ég hlakka mikið til að hefja störf á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Það er spennandi að fá tækifæri til að byggja upp taugagöngudeild og efla taugalækningaþjónustu á Norðurlandi, ásamt því að taka þátt í starfinu á sjúkrahúsinu. Ég hlakka sérstaklega til samstarfsins við starfsfólkið og til að byggja upp góða þjónustu til framtíðar,“ segir Ólína á vef SAk.

Tengdar greinar

Uppfært: 7. september 2026