Ölgerðin Egill Skallagrímsson og Vinir Akureyrar hafa skrifað undir samning þess efnis að Ölgerðin verði aðal styrktaraðili bæjarhátíðarinnar Einnar með öllu sem fram fer um verslunarmannahelgina á Akureyri hvert ár.
Vinir Akureyrar standa að hátíðinni í samvinnu við Atvinnu,- markaðs,- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Vinir Akureyrar er félag hagsmunaaðila í verslun og þjónustu á Akureyri og í nágrenni og er stærsti hluti kostnaðar við hátíðina greiddur af fyrirtækjum í bænum, smáum og stórum, sem leggja sitt að mörkum við að búa til skemmtilega stemningu í bænum.
Alls eru það á annað hundrað fyrirtækja sem leggja Einni með öllu og Íslensku sumarleikunum lið og eru þannig beinir þátttakendur og stuðningsaðilar en aðgangur er ókeypis á alla viðburði í bænum sem eru undir hatti Einnar með öllu. Viðburðastofa Norðurlands sér um skipulagningu hátíðarhaldanna.
Ein með Öllu verslunarmannahelgin á Akureyri
Dagskrá um Verslunarmannahelgina á Akureyri hefur fest sig í sessi undanfarin ár. Dagskráin hefur farið stækkandi og orðið fjölskylduvænni með árunum. Um Verslunarmannahelgina verður boðið upp á þéttskipaða dagskrá af stærri og smærri viðburðum.
Samráð og samstarf verður milli Einnar með öllu og ofangreindra framkvæmdaraðila í skipulagningunni.
Annað sem í boði verður:
- Óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju
- Hæfileikakeppni unga fólksins
- Markaðsstemmning á Ráðhústorgi alla helgina
- Skógardagurinn í Kjarnaskógi.
- Mömmur og möffins í Lystigarðinum.
- Rafhjólamót Rafhjólaklúbbs Akureyrar
- Crossfit keppni.
- Strandblakmót
- Utanvegahlaupið Súlur Vertical sem haldið er af SV – félagasamtökum
- Vatnaboltar og Nerf stríð.
- Tívólí.
- Hátíðartónleikar á Leikhúsflötinni á sunnudagskvöldi – verður stórglæsilegt skreytt frábærum tónlistatriðum.
- Flugeldasýningu, smábátum og almennri hamingju
Enn er verið að raða saman dagskrá sem verður öll hin glæsilegasta.
UMMÆLI