MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Ókeypis lagasmiðjur með Flammeus á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
6a748a2d0b327
kaffid.is

Ókeypis lagasmiðjur fara fram í Tónlistarskólanum á Akureyri miðvikudaginn 19. ágúst. Um kvöldið færist dagskráin yfir í Deigluna, þar sem ný lög þátttakenda verða frumflutt. Leiðbeinandi smiðjanna er Tumi Hrannar Pálmason, sem kemur fram undir listamannsnafninu Flammeus. Öllum er velkomið að taka þátt og hvorki er gerð krafa um tónlistarnám né reynslu af lagasmíðum.

Tumi er Akureyringur og útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri. Á unglingsárunum lagði hann stund á rafbassaleik við Tónlistarskólann á Akureyri en flutti síðar til Þýskalands. Þar er hann nú hálfnaður með meistaranám í rafbassaleik við Þýska ríkistónlistarháskólann í Mannheim.

Smiðjurnar standa yfir frá klukkan 10 til 16 og henta bæði byrjendum og þeim sem þegar hafa öðlast reynslu. Í brennidepli verður uppbygging laga sem almenningur á auðvelt með að taka undir.

Að sögn Tuma verður lögð rík áhersla á opið, jákvætt og hvetjandi andrúmsloft. Þátttakendur fá þar svigrúm til að vinna úr eigin hugmyndum og skapa nýja tónlist undir faglegri leiðsögn, óháð fyrri reynslu eða tónlistarmenntun.

Ný lög dagsins lifna við í Deiglunni Um kvöldið verður efnt til tónleika í Deiglunni í Listagilinu. Þar verða lögin sem samin voru í smiðjunum fyrr um daginn flutt með virkri þátttöku áhorfenda, sem verða hvattir til að syngja með.

Tónleikarnir gefa gestum tækifæri til að heyra afrakstur dagsins og taka þátt í lifandi sköpun. Fyrir þátttakendur smiðjanna verður stundin sömuleiðis sérstök, enda fá þeir að upplifa glæný verk sín flutt opinberlega í fyrsta sinn. Verkefnið er unnið í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri og Gilfélagið. Ekkert þátttökugjald er tekið fyrir smiðjurnar en nauðsynlegt er að skrá sig.

Skráning fer fram á heimasíðu lagasmiðjanna.

Hver skráður þátttakandi fær einnig einn ókeypis boðsmiða á tónleikana fyrir vin. Umfram það kosta miðar á tónleikara 2500kr.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026