Oddur og Sigtryggur öflugir í sigri Balingen

Oddur Gretarsson

Akureyringaliðið Balingen mætti Eisenach í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Rúnar Sigtryggson er þjálfari liðsins og Oddur Gretarson og Sigtryggur Daði Rúnarsson spila með því. Liðið hefur farið vel af stað í deildinni og er í toppbaráttu.

Balingen vann öruggan sogur í kvöld 32-22. Oddur Gretarsson var markahæsti leikmaður leiksins með sjö mörk og þá skoraði Sigtryggur Daði Rúnarsson 4 mörk.

Eftir leikinn er liðið í 3. sæti deildarinnar með 11 stig.

 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!