MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Nýtt stígakerfi Akureyrarbæjar

Eftir Ritstjórn·
m1
kaffid.is

Tillaga að nýju stígakerfi innan Akureyrarbæjar liggur fyrir og er hún sett fram sem breyting að aðalskipulagi 2018-2030. Skipulagsráð bæjarins hefur samþykkt að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér nýtt heildarskipulag fyrir stígakerfið innanbæjar. Er tillagan unnin í samræmi við markmið bæjarins um að byggja upp skilvirkt, öruggt og aðlaðandi stígakerfi sem gerir íbúum kleift að sinna vinnu, daglegum erindum og frístundum allt árið um kring. Í tillögunni er stígakerfið flokkað í stofnstíga, tengistíga, útivistarstíga, reiðstíga og almenna stíga.

Í skipulaginu er meðal annars gert ráð fyrir auknum aðskilnaði gangandi og hjólandi umferðar með uppbyggingu á nýjum stofnstígum og endurbótum á þeim sem fyrir eru.

Gögn aðalskipulagsbreytingarinnar er hægt að nálgast hér:

Greinagerð 1. hluti
Greinagerð 2. hluti
Greinagerð 3. hluti
Greinagerð 4. hluti

Í ljósi aðstæðna verða útprentuð gögn ekki aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsinu eins og almennt er gert.

Ekki er gert ráð fyrir sérstökum kynningarfundi um stígakerfið að sinni en íbúum gefst tækifæri til að senda inn spurningar um málið á netfangið skipulagssvid@akureyri.is. Spurningum verður svarað skriflega á heimasíðunni í kjölfarið. Nafn sendanda verður ekki birt. Síðasti séns til að senda inn athugasemdir og ábendingar er 20. maí næstkomandi.

Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagssviði Akureyrarkaupstaðar, með því að senda inn fyrirspurn á skipulagssvid@akureyri.is eða í síma 460 1110 á milli 10-12 alla virka daga.

Frétt af akureyri.is

Tengdar greinar

Uppfært: 24. apríl 2026