Nýtt lag frá Pitenz

Tónlistarmaðurinn Áki Frostason sem gengur undir listamannsnafninu Pitenz sendi í dag frá sér nýtt lag. Lagið heitir See You Tomorrow og kemur út hjá listasamlaginu og útgáfufélaginu MBS Skífur á Akureyri.
Um See You Tomorrow
See You Tomorrow má lýsa sem einskonar avant-pop ballöðu sem droppar aldrei.
Upphaflega var lagið samið kringum hljóðbút úr lagi eftir ónefndan bandarískan tónlistarmann. Eftir samskipti við pródúser viðkomandi komst Pitenz að því að hann átti ekki efni á réttindunum til að nota hljóðbútinn svo hann skapaði eigin grunn og byggði loks ofan á það.
Pitenz segir um See You Tomorrow. „Ég er eiginlega feginn, því lagið fékk þannig algerlega sitt eigið sánd. Mig langaði alltaf að skapa hljóðheim sem ég gæti týnt mér í og fyrir mér er þetta lag hinn fullkomni felustaður. Ég ætla ekki að útskýra textann sem er jafn opinskár og hann er kryptískur.“
Tónlistarmyndbandið við lagið var tekið upp í Tasmaníu sem er eyja suður af Ástralíu. Áki Frostason AKA Pitenz var þar við rannsóknarvinnu á slóð Jörundar Hundadagakonungs þegar myndbandið var tekið upp. Tónlistarmyndbandið er unnið í samstarfi við Folding House Productions og er singúllinn See You Tomorrow gefinn út hjá MBS Skífum. Pitenz sá sjálfur um mix en Þorsteinn Kári Guðmundsson um hljóðjöfnun.
Um Pitenz
Pitenz hefur aldrei verið leyft að hvíla sig á einum stað. Úr þyngri dimmbylgjutónum þróaði Áki Frostason verkefnið yfir í synth-pop og þaðan yfir í melankólíska og hedóníska ný-dans blöndu, sem fær bæði að njóta sín með og án söngs.
Um MBS
MBS er listasamlag og útgáfufélag á Akureyri sem hefur staðið að sjálfstæðri tónlistarútgáfu og viðburðahaldi frá árinu 2010. Í starfsemi MBS er sérstök áhersla á listafólk úr nærumhverfinu og það mengi sem syndir fjarri meginstraumum. MBS hefur gefið út 22 breiðskífur og 11 smáskífur á starfstíma sínum. Listasamlagið hefur einnig staðið fyrir menningarhátíðinni Mannfólkið breytist í slím frá árinu 2018 auk ótal smærri viðburða frá stofnun.
Um Folding House Productions
Folding House Productions er framleiðslufyrirtæki í Eistlandi með fókus á óhefðbundnar sviðslistir og myndbandsframleiðslu. Áki á sjálfur aðild að fyrirtækinu og hefur unnið við hljóðhönnun og sem sviðslistamaður undir þeirra nafni.
See You Tomorrow tónlistarmyndband:
See You Tomorrow á spotify:
Heimasíða MBS:
MBS á samfélagsmiðlum:
https://www.facebook.com/mbsskifur/
Folding House Productions á samfélagsmiðlum:
https://www.instagram.com/foldinghouseproductions/
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










