Nýtt lag frá Jóa Bjarka
Eftir María Hjelm·

Jói Bjarki er tónlistarmaður frá Hjalteyri sem er búsettur á Akureyri. Undanfarin ár hefur hann verið að fást við tónlist og gefið út nokkur lög.
Í gær gaf hann út nýtt lag. Lagið ber titilinn Sleggjan og Jói Bjarki samdi lag og texta, söng allar raddir, spilaði á gítar og bassa ásamt öðrum hljóðfærum – og blístraði líka.
„Þetta lag samdi ég til móður minnar í vor en hún var þá mjög veik og var varla hugað líf. Í dag er hún þó komin heim og er mikil endurhæfing framundan. En við fjölskyldan tökum þeirri stöðu fegins hendi. Titill lagsins er Sleggjan en hann pabbi minn hefur notað það gælunafn á mömmu lengi vegna mikillar þrautseigju hennar,“ segir Jói Bjarki.
Hér má hlusta á lagið Sleggjan.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










