Mastur (MSTR ehf.) er nýtt fyrirtæki á sviði sjávarútvegstækni sem hefur hafið starfsemi í samstarfi við Micro. Félagið sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu. Að félaginu stendur Micro ehf, ásamt hjónunum Elvar Stefánssyni og Silfá Huld Bjarmadóttur sem áður störfuðu hjá Vélfagi ehf.
Starfsemi Mastur felur meðal annars í sér þjónustu og viðhald á fiskvinnslubúnaði, sölu varahluta og áframhaldandi þróun lausna fyrir vinnslu, með áherslu á áreiðanleika, gæði og hraða þjónustu. Fyrirtækið hefur þegar hafið starfsemi og hefur þegar lokið afhendingu fyrstu pantana til viðskiptavina. Unnið er að frekari verkefnum og afhendingum á næstu misserum. Jafnframt er verið að byggja upp þjónustunet og styrkja tengsl við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði innanlands og erlendis.
Stjórn félagsins skipa Magnús Rúnar Guðmundsson, stjórnarformaður, ásamt Silfá Huld Bjarmadóttur og Gunnari Óla Sölvasyni. Elvar Stefánsson er framkvæmdastjóri félagsins.
Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins má finna á mastur.is










