Nýtt bakarí opnað á Húsavík
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Húsvíkingar hafa verið án bakarís í þónokkurn tíma eða allt frá því að Heimabakarí hætti rekstri árið 2024. Í hádeginu í dag opnaði bakraríið Gilið dyr sínar í húsnæði Víkurrafs á Öskjureitnum. Húsavík.com greindi frá því að röð hefði verið langt út úr dyrum og að Klói, lukkudýr kókómjólkur, hefði verið á svæðinu til þess að gleðja yngstu kynslóðina.
Boðið verður upp á hefðbundið bakrarísgóðmeti, þar á meðal hin víðfrægu kúmenihornum, í bland við ýmsar nýjungar. Verslunar- og athafnakonan Birgitta Bjarney Svavarsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Geiri Ívarssyni, standa að rekstri bakarísins.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










