Fyrirtækið Verna býður nú bílstjórum á Akureyri að nota nýtt smáforrit (app) til að greiða fyrir gjaldskyld bílastæði í miðbænum. Þetta kemur fram á vef bæjarins.
Fyrir eru í notkun smáforritin EasyPark og Parka sem ökumenn ættu að kannast við en bæði innheimta þau annaðhvort fast mánaðargjald eða færslugjald í hvert sinn sem bílnum er lagt.
Allar nánari Upplýsingar um gjaldskyld stæði, gjaldsvæði og þau smáforrit sem í boði eru er að finna á heimasíðu bifreiðastæðasjóðs Akureyrarbæjar.
UMMÆLI