Verksmiðjan, nýr veitingastaður og sportbar, opnar í vor á Glerártorgi, Akureyri.
Staðurinn verður á tveimur hæðum, á neðri hæðinni verður veitingastaðurinn og á efri hæðinni verður sportbarinn þar sem hægt verður að sitja á opnu svæði til að horfa á viðburði eða vera í básum með meira næði.
Á Facebook-síðu staðarins birtist nýlega þrívíddarmyndband sem sýnir hvernig staðurinn mun líta út þegar allar framkvæmdri klárast.
UMMÆLI