Nýr sérfræðingur í fjármálum hjá HSN

Harpa Sif Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf sérfræðings í fjármálum hjá HSN, með starfsstöð á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í tilkynningu HSN í dag.

Harpa Sif er með BS í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc í fjármálum frá Háskólanum í Gautaborg.

Á námsárunum starfaði Harpa meðal annars hjá Advania og Samskipum. Eftir nám starfaði hún í fjármálagreiningadeild hjá heilbrigðistæknifyrirtækinu XVIVO Perfusion þar sem hún meðal annars stýrði deildinni.

„Við bjóðum Hörpu Sif hjartanlega velkomna í okkar góða hóp,“ segir á vef HSN.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!