MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Nýr samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Grófarinnar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
grofin-2000×1500
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar, við undirritun samningsins fyrr í dag. Mynd: Akureyri.is· kaffid.is

Akureyrarbær og Grófin geðrækt hafa undirritað nýjan samstarfssamning um þjónustu Grófarinnar á Akureyri til ársloka 2028. Greint er frá í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Þar segir að markmið samningsins sé að efla Grófina í hlutverki sínu sem geðræktarmiðstöð. Ennfremur að auka tengsl og samvinnu Grófarinnar og þeirra aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með fólki sem glímir við geðraskanir.

Grófin veitir fullorðnum einstaklingum með geðraskanir samastað til bataferlis með aukinni virkni, jafningjastuðningi, hópastarfi og stuðningssamtölum. Lögð er áhersla á að skapa tækifæri til bata á eigin forsendum og án tímamarka.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026