Nýr samningur styrkir samstarf SAk og HA

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) og Háskólinn á Akureyri (HA) hafa gert samning sem markar mikilvægt skref í samstarfi stofnananna. Með samningnum mun Gísli Kort Kristófersson, prófessor við Hjúkrunarfræðideild HA og sérfræðingur í geðhjúkrun, sinna klínískum verkefnum og rannsóknar- og þróunarstarfi á SAk sem hluta af starfi sínu við háskólann. Samningurinn tók gildi 1. júní 2026 og gildir til loka árs 2028. Þetta kemur fram á vef SAk.
Samstarf SAk og HA á sér langa sögu, meðal annars á sviði kennslu, rannsókna og fræðastarfs. Nýja fyrirkomulagið felur í sér frekari þróun samstarfsins og mun Gísli Kort nú sinna skilgreindum verkefnum SAk sem hluta af starfi sínu við háskólann.
„Það er gríðarlega mikilvægt að gera rannsóknir starfsfólks SAk sýnilegar og að afrakstur þeirra verði akademísk verðmæti á lands- og heimsvísu. Þetta hefur heppnast mjög vel í samstarfi sjúkrahússins og háskólans um Heilbrigðisvísindastofnun SAk og HA. Stofnunin hefur undanfarinn áratug skapað grundvöll fyrir að starfsfólk SAk hafi einnig akademíska stöðu við HA og sé virkt og sýnilegt í starfi HA,“ segir Brynjar Karlsson, forseti fræðasviðs HA á vef SAk og bætir við;
„Með því að formgera starf Gísla á sjúkrahúsinu á þennan hátt erum við að stíga fyrsta skrefið í hina áttina. Þegar verkefni akademískra starfsmanna HA á SAk verða hluti af starfi þeirra við HA á skipulegan og formlegan hátt skapast mörg tækifæri til að lyfta þessum störfum upp og gefa þeim meira gildi. Þá bæði á mælikvörðum háskólans á rannsóknum sem og til að sýna að háskólinn er svo sannarlega að uppfylla þriðja hlutverk háskólans sem eru tengsl og þjónusta við samfélagið.“
Nánar á vef SAk.
Tengdar greinar
Uppfært: 7. september 2026










