MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Nýr MMA-klúbbur á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
600MMA
kaffid.is

Halldór Logi Valsson og Gunnar Þór Ragnarsson hafa stofnað nýjan MMA-klúbb á Akureyri. Stefnt er að opnun 600 MMA þann 9. september næstkomandi þar sem verður boðið upp á handleiðslu í bardagaíþróttum. Greint er frá á MMAfrettir.is.

600 MMA mun opna í húsakynnum 600 Klifur á Akureyri. Halldór Logi segir í samtali við MMA Fréttir að honum hafi alltaf dreymt um að opna sinn eigin klúbb og að eftir fund með eigendum 600 Klifur varð ljóst að það væri samstarf sem gæti blómstrað.

Boðið verður upp á tvær áskriftarleiðir í 600 MMA. Annars vegar aðgang að glímu og líkamsrækt fyrir þá sem vilja bara æfa glímu og svo heildarpakka þar sem iðkandinn fær aðgang að glímu, líkamsrækt og klifri.

Nánar á MMAfrettir.is

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026