MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Nýr matreiðslumeistari á Baccalá Bar

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
edited-photo
kaffid.is

Matreiðslumeistarinn Guðmundur Sverrisson hefur tekið við sem nýr yfirkokkur á Baccalá Bar á Hauganesi. Guðmundur kláraði meistaranám í matreiðslu nú í vor og tók formlega við starfinu í apríl síðastliðnum. Það stefnir í spennandi vetur á staðnum þar sem áhersla verður á fjölbreytta viðburði og nýjungar á matseðli, jafnhliða því að halda í vinsæla rétti sem staðurinn er þekktur fyrir.

Guðmundur hefur víðtæka reynslu úr veitingageiranum á Akureyri. Hann starfaði um átta ára skeið á Múlabergi Bistro & Bar og tók einnig virkan þátt í uppbyggingu Teríunnar. Eftir að hafa útskrifast sem matreiðslusveinn árið 2020 sóttist hann eftir nýjum áskorunum og kynntist bandaríska matreiðslumanninum Matthew Wickstrom. Leiðir þeirra láu saman á ný á Baccalá Bar eftir að hafa unnið að ýmsum spennandi matreiðsluverkefnum saman undanfarin misseri svo sem fínni kvöldverði í heimahúsum gestana eða viðburð í töfrandi umhverfi í uppgerðu gróðurhúsi.

„Við Matt höfðum talað um að taka saman aftur vegna þess að við höfum mikla ástríðu fyrir mat og allri þeirri sköpunargáfu sem honum fylgir og því liggur leið mín á Baccalá,“ segir Guðmundur um ákvörðunina að færa sig yfir á Hauganes.

Í vetur mun Baccalá bjóða upp á sígilda rétti á borð við fish & chips, saltfisk með smjöri, súpur og pizzur en einnig verður lögð rík áhersla á nýja og spennandi rétti.

„Baccalá Bar er ekki bara veitingastaður sem býður upp á pizzu og djúpsteiktan fisk, og þó að það er það sem fer hvað mest af, heldur setjum við mikla vinnu og hugsun í aðra rétti líka sem innihalda hvað mest fersku árstíðabundnu hráefnin úr héraði,“ segir hann um matargerðina.

Töluverðar breytingar eru verða sömuleiðis þar sem nýr og fullbúinn bar hefur verið tekinn í notkun og frá og með október mun hefjast viðamikil viðburðadagskrá. Á meðal þess sem gestir geta hlakkað til er Októberfest, morðgátukvöldverður, þakkargjörðarhátíð, bransakvöld og sérstök jólasigling með mat og búbblum. Sérstök jólaveisla verður svo haldin dagana 13. og 14. nóvember. Dagskráin verður kynnt nánar á samfélagsmiðlum staðarins eftir því sem líður á haustið og einnig í dagskránni. Markmiðið er að byggja á fyrri velgengni staðarins en á sama tíma bjóða upp á aukna upplifun fyrir gesti yfir vetrarmánuðina.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026