Nýr kynningar- og markaðsstjóri hjá Menningarfélagi Akureyrar

Menningarfélag Akureyrar hefur fengið Jóhannes Árnason til liðs við sig í starf kynningar- og markaðsstjóra.
Jóhannes hefur áralanga reynslu af markaðsmálum og hefur m.a. starfað sem texta- og hugmyndasmiður fyrir auglýsingastofurnar Vatikanið og EXPO.

Nú síðast starfaði hann hjá auglýsingastofunni Árnasynir sem hönnuður og texta- og hugmyndasmiður, auk þess að ganga í ýmis önnur störf.

Jóhannes er með BA gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og samhliða 50% starfi fyrir Menningarfélag Akureyrar vinnur hann að lokaverkefni meistaranáms í rekstrar- og nýsköpunarstjórnun við Álaborgarháskóla.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!