MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Nýr kjúklingastaður á Akureyri

Eftir María Hjelm·
chikin-2-1000×600-1
Atli Snær Rafnsson og Einar Örn Einarsson· kaffid.is

Atli Snær Rafnsson og Einar Örn Einarsson opna kjúklingastaðinn Chikin á Glerártorgi á Akureyri. Staðurinn býður uppá djúpsteiktan kjúkling og er maturinn undir áhrifum frá bæði Bandaríkjunum og Kóreu. Þetta kemur fram á veitingageirinn.is.

Einar Örn hefur áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur meðal annars veitingastaði í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Atli Snær er matreiðslumeistari og hefur unnið til margra verðlauna fyrir matargerð sína. Hann stofnaði veitingastaðina Kore.

Atli og Einar Örn hafa unnið saman síðustu ár. Atli Snær er rekstrarstjóri á Wok to Walk þar sem Einar Örn hefur verið framkvæmdastjóri og Atli Snær hafði einnig yfirumsjón með stórum breytingum á öllum mat á Zócalo í vetur.

„Við höfum lengi velt fyrir okkur þeim möguleika að opna saman kjúklingastað. Ég hef verið að segja Atla hvaða kjúklingavængir og borgarar mér finnast góðir og hann hefur alltaf haldið því fram að hann gæti gert betur. Svo ég fékk hann með mér í þetta verkefni til að hann gæti sannað að hann kynni að gera besta kjúklinginn.“

„Að mínu mati er fátt betra en djúpsteiktur kjúklingur og ég hef stúderað þessa tegund af mat mikið, bæði með hefðbundnum amerískum hætti og líka á stöðum sem hafa mikil áhrif frá Kóreu. Djúpsteiktur kjúklingur býður uppá svo mikla möguleika og það erum við að sýna hér á Chikin.“

Til að byrja með mun staðurinn einbeita sér að tveimur kjúklingaborgurum, tveimur vefjum, vængjum, frönskum og örfáum smáréttum.

„Þetta þarf ekki að vera flókið. Við viljum einbeita okkur að því að gera fáa hluti, en gera þá virkilega vel.“

Rekstraraðilar Chikin á Akureyri eru þeir sömu og reka Wok to Walk á Akureyri, hjónin Ásrún Nicole Guðmundsdóttir og Kenji Kanan.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026