Undirbúningur er nú að hefjast við skipulag nýs kirkjugarðs á Akureyri. Bæjaryfirvöld úthlutuðu um 20 hektara svæði fyrir nýjan greftrunarstað í Naustaborgum fyrr á þessu ári. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Smári Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar, segir í samtali við Morgunblaðið að nýi garðurinn verði staðsettur í útivistarsvæði og hann verði hluti af því. Kirkjugarðar eigi líka að vera fyrir lifandi fólk.
Tveir kirkjugarðar eru fyrir á Akureyri, annar er á Naustahöfða og hinn í Lögmannshlíð í Glerárhverfi. Á Naustahöfða var fyrst jarðsett árið 1863 en nú eru alls um 9000 grafir í garðinum sem verður bráðlega fullnýttur. Færri grafir eru í Lögmannshlíð en þar er mun minni garður.
Mynd: Naustaborgir /VisitAkureyri