Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

Nýr forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norður- og Austurlandi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-10-02-at-14.02.54
kaffid.is

Þorleifur Kr. Níelsson hóf störf sem forstöðumaður þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Norður- og Austurlandi í september síðastliðnum.

Þorleifur er félagsráðgjafi að mennt og með meistaragráðu í fjölskyldumeðferð auk meistaragráðu í forystu og stjórnun. Hann kemur til Vinnumálastofnunar frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, þar sem hann hefur starfað sem verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Þorleifur hefur um 20 ára reynslu af fjölbreyttum störfum á sviði velferðarmála og verkefna- og mannauðsstjórnunar, bæði hjá sveitarfélögum og þjónustustofnunum ríkisins. Auk þess hefur hann starfað sjálfstætt sem sérfræðingur í 14 ár.

„Ég er ánægður með að vera tekinn við starfinu og fá tækifæri til að vinna með öflugu starfsfólki Vinnumálastofnunar og þeim fjölbreytta hópi sem stofnunin þjónustar, hvort sem um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki eða sveitarfélög. Grunngildi Vinnumálastofnunar – fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki – falla vel að mínum eigin áherslum og þeirri nálgun sem ég vil hafa í starfi,“ segir Þorleifur.

Tengdar greinar

Uppfært: 2. október 2026