MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Nýr dansflokkur fyrir ungt danslistafólk á Akureyri

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
DanssetridArnaSifogIngunnElisabet
kaffid.is

Á Akureyri er að verða til nýr vettvangur fyrir ungt danslistafólk. Í ágúst fer af stað fyrsta verkefni UngDans Akureyrar, nýs dansflokks á vegum Danssetursins sem ætlaður er dönsurum á aldrinum 16–25 ára með fyrri reynslu af dansi.

Að baki verkefninu standa Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ingunn Elísabet Hreinsdóttir, stofnendur Danssetursins. Frá stofnun þess árið 2023 hefur Danssetrið staðið fyrir námskeiðum og verkefnum þar sem menntaðir danskennarar og danshöfundar miðla þekkingu sinni og reynslu. Nú vilja þær taka næsta skref.

„Við höfum báðar upplifað hvað það skiptir miklu máli að fá tækifæri til að vinna í skapandi ferli með starfandi danshöfundi og fá að kynnast fjölbreyttum aðferðum. Með UngDans Akureyri viljum við skapa sambærilegt tækifæri fyrir ungt danslistafólk á Norðurlandi. Þetta snýst ekki bara um að æfa dansverk heldur um að upplifa allt ferlið – frá ómótuðu verki að opinberri sýningu.“

Listræn stjórn fyrsta verkefnisins er í höndum danshöfundarins og dansarans Ólafar Óskar Þorgeirsdóttur sem starfar í Svíþjóð. Á æfingatímabilinu í ágúst vinna þátttakendur og danshöfundur að þróun nýs dansverks þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fjölbreyttar sköpunaraðferðir. Markmiðið er að gefa þátttakendum raunverulega innsýn í vinnuferli atvinnudansara og skapa vettvang þar sem hægt er að þróast sem sviðslistafólk.

Þótt fyrsta verkefnið fari fram í ágúst er framtíðarsýnin mun stærri. Markmiðið er að UngDans Akureyri verði vettvangur sem stendur til framtíðar, þar sem ólíkir danshöfundar leiða ný verkefni og ungir dansarar fá tækifæri til að skapa, koma fram og kynnast fjölbreyttum vinnuaðferðum. Með því vilja stofnendur efla danslist á Norðurlandi og skapa fleiri tækifæri fyrir ungt danslistafólk til að þróast og taka þátt í menningarlífi svæðisins.

UngDans Akureyri hlaut nýverið styrk frá Menningarsjóði Akureyrarbæjar sem gerir hópnum kleift að hrinda fyrsta verkefninu í framkvæmd. Stofnendur segja styrkinn mikilvægt fyrsta skref í uppbyggingu verkefnisins og vona að hann marki upphaf að öflugum vettvangi fyrir ungt danslistafólk á Norðurlandi.

Nú er leitað að fyrsta hópi UngDans Akureyrar. Ef þú ert á aldrinum 16–25 ára, býrð yfir fyrri reynslu af dansi og langar að vera í skapandi umhverfi og vinna með starfandi danshöfundi, þá hvetjum við þig til að sækja um.

Ef þú hefur spurningar, vangaveltur eða langar að vita meira um verkefnið er þér velkomið að hafa samband við okkur á danssetrid@danssetrid.is.

Einnig hvetjum við fólk til að fylgja Danssetrinu á samfélagsmiðlum.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026