Nýnemar í byggingadeild VMA færðu Kjarnaskógi gjöf

Nýnemar í byggingadeild VMA afhentu í gær forráðamönnum Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem sér um Kjarnaskóg, tvö útiborð að gjöf sem þeir höfðu smíðað. Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins þakkaði gjöfina og sagði að borðin muni nýtast mjög vel í skóginum. Greint er frá á vef VMA.
Hér eru myndir sem Jóhann H. Þorsteinsson kennari tók við afhendinguna.
„Eins og allir vita er Kjarnaskógur/Naustaborgir einstök náttúruperla sem Akureyringar eru duglegir að njóta árið um kring. Og ekki bara Akureyringar því hróður þessa einstaka útivistarsvæðis hefur borist um land allt og því er ekki síður mikill fjöldi gesta sem sækir Akureyri heim sem leggur leið sína í Kjarnaskóg og nýtur alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Skógræktarfélag Eyfirðinga og starfsfólk þess á miklar þakkir skildar fyrir markvissa og glæsilega uppbyggingu í Kjarnaskógi á undanförnum árum,“ segir í umfjölllun á vef VMA.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. september 2026










