Gæludýr.is

Nýjar klukkur á leið til Grímseyjar sýndar í Hallgrímskirkju

Nýjar klukkur á leið til Grímseyjar sýndar í Hallgrímskirkju

Eftir guðþjónustu á páskamorgni voru glænýjar kirkjuklukkur, sem eru á leið til Grímseyjar, afhjúpaðar og blessaðar í fordyri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Siglt verður með klukkurnar til Grímseyjar í vor eða sumar þegar allt verður til reiðu í nýja kirkjuturninum til þess að taka á móti þeim. Þetta kemur fram á vef Hallgrímskirkju.

„Á veggspjaldi er rakin saga Miðgarðakirkju og bruna hennar 21. september 2021 svo og bygging nýrrar kirkju í Grímsey sem er komin vel áleiðis. Í brunanum bráðnuðu tvær gamlar bronsklukkur. Hallgrímssöfnuður ákvað að standa fyrir söfnun og láta steypa nýjar klukkur í Hollandi. Með þessu er Hallgrímskirkja að endurgjalda vinargjöf frá því fyrir hálfri öld, en þá var ein af klukkunum í klukknaspili kirkjunnar gefin í nafni Grímseyinga,“ segir á vef Hallgrímskirkju.

Kirkjan hefur einnig sérstök tengsl við Miðgarðakirkju, þar sem yfirkirkjuvörður Hallgrímskirkju, Grétar Einarsson, er sonur Einars heitins Einarssonar djákna, sem starfaði um skeið í Grímsey, og gerði nokkra af þeim kirkjumunum sem glötuðust í eldinum.

Einar Karl Haraldsson, formaður sóknarnefndar, stýrði athöfninni, Irma Sjöfn Óskarsdóttir sóknarprestur mælti blessunarorð og Grétar Einarsson afhjúpaði kirkjuklukkurnar.

Tekið verður á móti framlögum til byggingar nýrrar kirkju í Grímsey meðan klukkusýningin stendur í Hallgrímskirkju.

Sambíó

UMMÆLI