Aðalfundur Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis var haldinn í Glerárkirkju í gær, fimmtudaginn 23. maí. Á fundinum kynnti fráfarandi stjórn ársreikning 2023 og helstu atriði starfsins á liðnu stjórnarári. Þetta kemur fram á vefsíðu sjóðsins.
Þar kom meðal annars fram að jólaaðstoðin 2023 var með breyttu sniði, þar sem umsækjendur voru boðaðir í viðtöl en ekki í opna úthlutun. Almenn ánægja var með þetta fyrirkomulag. Aðstoðin fyrir jólin 2023 var sú dýrasta í sögu sjóðsins, en ákveðið var að hækka upphæðir jólaaðstoðarinnar vegna mikilla verðhækkana í samfélaginu.
Annað verkefni sem vert er að nefna er Velferðarstjarnan sem var skemmtilegt samstarf sjóðsins, Glerártorgs og Slippsins. Verkefnið skilaði bæði töluverðu fjármagni og ekki síður góðri umfjöllun um starf sjóðsins.
Á fundinum var tilkynnt um tilnefningar aðildarfélaganna í stjórn. Ný stjórn er skipuð eftirfarandi einstaklingum (Á mynd að ofan):
Fyrir hönd Hjálpræðishersins: Herdís Helgadóttir, varamaður Lárus Óskar Sigmundsson.
Fyrir hönd Rauða krossins: Kristín Björk Gunnarssdóttir, varamaður Baldvin Valdemarsson.
Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar: Snjólaug Ósk Aðalsteinsdóttir, varamaður Sumarrós H. Ragnarsdóttir.
Fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar: Kristbjörg Sigurðardóttir, varamaður Guðmundur Guðmundsson.
UMMÆLI