MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ný stjórn FKA norðurlands

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Stjorn-FKA-nordhurlands-2026-27
kaffid.is

Ný stjórn FKA í ört vaxandi félagi kvenna í atvinnulífinu á norðurlandi hefur verið kosin fyrir félagsárið 2026-27 í henni eru:

Aðalbjörg Kristín Snorradóttir

Arnheiður Jóhannsdóttir

Ásdís Sigurðardóttir

Bryndís Óskarsdóttir

Hanna Dögg Maronsdóttir

Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, formaður.

Sif Jónsdóttir

Í tilkynningu frá félaginu segir:

Sterkt hreyfiafl kvenna í atvinnulífinu er ein af undirstöðum heilbrigðs og fjölbreytts atvinnulífs á landsbyggðinni — það skapar rými fyrir konur til að stíga fram, taka pláss í forystu og byggja upp tengslanet sem annars væri erfitt að finna utan.

,,Okkur hefur fjölgað núna um helming á nokkrum mánuðum sem sýnir okkur hvað þörfin fyrir gefandi vettfang fyrir konur sem vilja næra sig og aðra.”

Deildin hefur lagt aukna áhersla á sýnileika og virkara samtal við félagskonur — skýr vísbending um að þörfin fyrir slíkt afl er raunveruleg og vaxandi.

„Þetta er ekki saumaklúbbur með ársreikningi — þetta er hreyfiafl kvenna úr öllum greinum atvinnulífsins, sem taka höndum saman, lyfta hver annarri upp og láta hlutina gerast. Við höldum áfram að tengja, hvetja og gera 2026-27 að ári sem munar um,“ segir Jóhanna Hildur, formaður en hún hefur sjálf verið í félaginu síðan 2019.

Þær konur sem hafa áhuga á að kynnast félaginu geta skoðað heimasíðu FKA.is, eða skoðað instagram reikning fka norðurlands. Félagið telur um 1500 konur af öllu landinu með ótal deildum og mikil tækifæri fyrir konur að láta gott af sér leiða og taka þátt í hreyfiaflsverkefnum. Nýja stjórnin er þegar farin að teikna upp vetrardagskrána og lofar að hún verði bæði fjörug og gagnleg. Félagskonur eru hvattar til að fylgjast vel með og mæta hressar á næsta viðburð.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026