Ný plata Saint Pete komin út
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Rapparinn og Akureyringurinn Pétur Már Guðmundsson, Saint Pete, gaf í dag út plötuna Tvíbrrri. Pétur mun fagna útgáfu plötunnar með sínum fyrstu stórtónleikum á Hlíðarenda í Reykjavík næstkomandi föstudag, 9. október.
Platan inniheldur átta lög og er önnu plata Saint Pete sem skaust upp á stjörnuhimininn með plötunni Græni Pakkinn fyrir tveimur árum.
Sjá einnig: „Geðveikt að vera tónlistarmaður í fullri vinnu“
Nafn plötunnar er tilvísun í það að Pétur og samstarfsmaður hans Hreinn Orri séu báðir í stjörnumerkinu tvíburi. Þeir séu smá tvíburar og vinni eins og einn heili í tónlistarsköpun Saint Pete.
Hlustaðu á Tvíbrrri:
Tengdar greinar
Uppfært: 6. október 2026





