Ný mathöll á Glerártorgi opnar loks á næstu vikum

Ný mathöll á Glerártorgi opnar loks á næstu vikum

Guðmundur Péturson, annar rekstrarstjóri mathallarinnar Iðunn á Glerártorgi, segir í samtali við Akureyri.net að mathöllin muni loksins opna dyr sínar áður en aðventan gengur í garð í ár.

Kaffið hefur áður greint frá ýmsum erfiðleikum sem einkennt hefur sögu mathallarinnar, en eins og reifað er í umfjöllun Akureyri.net stóð fyrst til að opna hana snemma sumars, síðan í ágúst og síðan í september. Guðmundi þykir það leitt hve lengi Akureyringar hafa þurft að bíða eftir opnuninni, en segir að nú sé allt á lokametrunum. Innréttingar og tæki séu komin norður og einungis þurfi að „henda þessu upp.”

Akureyri.net greindi fyrst frá.

UMMÆLI

Sambíó