Ný innisundlaug opnuð í Sundlaug Akureyrar

Ný innisundlaug hefur verið opnuð í Sundlaug Akureyrar eftir umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar í dag. Þar segir að lögð hafi verið áhersla á að varðveita sögu staðarins við endurbæturnar um leið og aðstaðan var færð til nútímans.
Sundlaugarkarið sjálft er því hið sama og áður og innfelldir stigar hafa verið varðveittir. Jafnframt hefur verið bætt við rampi til að auka aðgengi gesta.Nýja laugin er einnig hugsuð sem þjálfunarlaug og er búin andstreymisbúnaði sem gerir fólki kleift að synda á sama stað.
„Þá var sérstök áhersla lögð á að skapa hlýlegt umhverfi og nýta vel það fallega útsýni sem er yfir Andapollinn og miðbæ Akureyrar. Niðurstaðan er glæsileg inniaðstaða sem mun nýtast fjölbreyttum hópi sundlaugargesta um ókomin ár,“ segir á vef bæjarins.


Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










