MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfi Akureyrar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
DJI_0193
akureyri· kaffid.is

Áætlað er að mánudaginn 6. júlí hefjist vinna við tengingu nýrrar hreinsistöðvar fráveitu við fráveitukerfið á Akureyri. Stefnt er að því að ljúka verkinu á fjórum til fimm dögum, en einungis er hægt að vinna verkið á fjöru og er um nokkra verkþætti að ræða. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að á meðan vinnunni stendur mun megninu af fráveituvatni frá Akureyri verða hleypt út um neyðarkerfi við sunnanverðan Glerárós. Einnig verður fráveituvatni hleypt út í voginn sunnan Krossaness.

Að framkvæmdum loknum mun fráveituvatnið fara um nýja útrás við hreinsistöðina sem er tæplega 400 metra löng og nær niður á 40 metra dýpi. Áætlað er að í sumar verði hreinsistöðin prófuð og síðan tekin endanlega í notkun seinni hluta ágústmánaðar.

Fólk er beðið um að sýna aðgát og stunda ekki sjóböð á viðkomandi svæðum meðan á tengiframkvæmdum stendur. Myndirnar hér að neðan sem eru fengnar af vef Akureyrarbæjar sýna þær neyðarútrásir sem verða nýttar.

Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfi Akureyrar
Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfi Akureyrar

Tengdar greinar

Uppfært: 24. apríl 2026