Ný heilsugæslustöð í Sunnuhlíð opnuð formlega

Ný heilsugæslustöð í Sunnuhlíð á Akureyri var formlega tekin í notkun 4. mars. Margir góðir gestir voru viðstaddir og fluttu Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN ávörp. Gestum var boðið að skoða húsnæðið og var mikil ánægja með glæsilega aðstöðu.

„Það er mikil bylting fyrir starfsfólk og íbúa svæðisins að fá vel útbúið húsnæði sem er sérhannað fyrir starfsemina og þar sem áhersla er lögð á heilsusamlegt vinnuumhverfi,“ segir í tilkynningu HSN.

Sjá einnig: „Það sem við fáum í staðinn er margfalt mikilvægara“

Hér fylgja nokkrar myndir frá opnuninni af vef HSN:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!