MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Ný gæðahandbók styrkir þjónustu við börn og ungmenni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
HSN-Akureyri-Hvannavellir-9040
kaffid.is

Fyrsta gæðahandbókin um geðheilbrigðisþjónustu barna í íslenskri heilsugæslu hefur litið dagsins ljós. Handbókinni er ætlað að styðja við samræmt verklag og bæta þjónustu við börn og ungmenni með vægan til miðlungsalvarlegan geðheilbrigðisvanda. Aðalheiður Jónsdóttir, aðstoðaryfirsálfræðingur hjá HSN, tók þátt í gerð handbókarinnar.

Verkefnið var unnið í samstarfi Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og HSN. Guðríður Haraldsdóttir, klínískur sálfræðingur hjá Geðheilsumiðstöð barna hóf vinnuna ásamt Liv Önnu Gunnell, fagstjóra sálfræðiþjónustu hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og tók Aðalheiður síðar við verkefninu af Guðríði. Fjöldi sálfræðinga kom að vinnunni og yfirlestri handbókarinnar, auk þess sem persónuverndarfulltrúi HSN las yfir einn kafla hennar. Bókin verður uppfærð eftir því sem þjónustan þróast og gæðastaðlar og klínískar leiðbeiningar verða uppfærðar.

Mynd: HSN.is
Mynd: HSN.is

„Þessi útgáfa er mjög mikilvægur áfangi, en um níu ár eru síðan fyrstu barnasálfræðingarnir hófu störf innan heilsugæslunnar. Þó að við séum í grunninn að vinna eftir sama verklagi innan heilsugæslunnar, þá rammar handbókin verklag betur inn. Henni er ætlað að stuðla að því að börn að 18 ára aldri fái rétta þjónustu, að vandi þeirra sé metinn með viðeigandi hætti og að í framhaldinu sé veitt rétt og árangursríkari meðferð,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir á vef HSN.

Gæðahandbók í heilsugæslu – Fyrsta þjónustustig fyrir börn og ungmenni – 2026

Ítarleg umfjöllun á vef HSN.

Tengdar greinar

Uppfært: 12. september 2026