Ný bók Hlyns Hallssonar komin út hjá Flóru Menningarhúsi

Ný bók Hlyns Hallssonar komin út hjá Flóru Menningarhúsi

Bókverkið Þúsund dagar – Dagur eitthundraðþrjátíuogníu til tvöhundruðfjörtíuogþrjú eftir Hlyn Hallsson er komið út hjá Flóru Menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri. Bókin er hluti af Pastel ritöðinni og er sjálfstætt framhald fyrri bókar Hlyns, Þúsund dagar – Dagur eitt til eitthundraðþrjátíuogátta sem kom út hjá Flóru í sömu ritröð árið 2017. Nýja bókin er byggð á dagbókum Hlyns sem hann hefur skrifað undanfarin 40 ár og hugleiðingum þeim tengdum. Hún er 40 síður og gefin út í 100 tölusettum og árituðum eintökum. Cave canem hönnunarstofa setti upp og bjó til prentunar og Prentsmiðjan sá um prentun.

Samhliða útgáfu bókverksins hefur Hlynur sett upp sýninguna Herbergi með Útsýni í Gallery Porti sem er á Hallveigargötu 19-23 í Reykjavík. Á sýningunni gefur meðal annars að líta 243 teikningar þar sem ein teikning er fyrir hvern dag í þessum tveimur bókum. Sýningin stendur til 28. september 2024 og er opin miðvikudaga til laugardaga kl. 12.-17.

Bókin er til sölu í Flóru Menningarhúsi, í Gallery Porti og á netinu á pastel.is.

UMMÆLI