Ný bók eftir Rachael Lorna Johnstone

Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Lagadeild og rannsóknastjóra Háskólans á Akureyri, hefur gefið út bókina International Law and Displaced Archives in Arctic Countries.
Bókin fjallar um hvernig skjalasöfn móta skilning okkar á sögu norðurslóða og íbúa svæðisins. Í bókinni er fjallað um hver fer með stjórn sögulegra heimilda og hvernig skjalasöfn stuðla að mótun sameiginlegra minninga og þjóðarvitundar. Einnig er skoðað hvaða réttindi frumbyggjar hafa þegar kemur að aðgengi og umsjón með gögnum er varða samfélög þeirra. Bókin byggir á dæmum frá Íslandi, Kanada, Grænlandi og Sápmi. Rachael ritstýrði bókinni ásamt James Lowry, prófessor við City University of New York.
Í bókinni eru einnig fræðileg framlög frá Romain Chuffart, Nansen-prófessor við Háskólann á Akureyri, og Giorgio Baruchello, prófessor í heimspeki, ásamt framlagi frá fleirum.
Bókaútgáfunni verður fagnað með útgáfukynningu í Háskólanum á Akureyri 30. október, þar sem efni bókarinnar verður kynnt og rætt.
Ítarlegri umfjöllun um bókaútgáfuna má finna á vef Háskólans á Akureyri með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 5. október 2026





