Ný biðstæði leigubíla í miðbænum til reynslu

Skipulagsráð hefur samþykkt að gera tilraun með nýtt biðsvæði fyrir leigubíla í miðbæ Akureyrar. Tilraunin gildir til 1. október 2026 og er markmið hennar að bæta aðgengi að leigubílaþjónustu í miðbænum. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Þar segir að nýju biðstæðin verði í Túngötu, fyrir framan verslun Símans. Svæðinu verður skipt upp þannig að þrjú nyrstu bílastæðin verða áfram almenn stæði, þar af eitt P-stæði fyrir hreyfihamlaða. Stór blómapottur mun afmarka svæðið. Sunnan við blómapottinn verða fjögur stæði sem eru eingöngu ætluð leigubílum. Öðrum ökutækjum er óheimilt að leggja í þessi stæði og geta ökumenn átt von á sektum ef stæðin eru notuð í öðrum tilgangi.
Þeim sem sækja miðbæinn er bent á að nýta almenn bílastæði, meðal annars stæðin norðan við gamla Landsbankann, þar sem gott aðgengi er að verslun og þjónustu.
Framundan er ein annasamasta helgi ársins á Akureyri en búist er við 10–15 þúsund gestum til bæjarins, með skemmtiferðaskipum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










