Notkun nagladekkja á Akureyri aukist

Á tímabilinu 2005-2014 voru um 60 prósent bíla á Akureyri á nagladekkjum yfir veturinn. Síðustu tíu ár hefur notkunin aukist og þegar talið var í mars sl. voru um 85% bíla á negldum dekkjum. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

„Hingað til hefur hlutfall bíla á nagladekkjum einfaldlega verið metið með því að hlusta og horfa. Talningarnar hófust árið 1975 en þó var ekki talið 1979, 1983-1985, 1987, 1997 og 2000-2002. Talið hefur verið 4-5 sinnum undir lok vetrar. Á þann hátt hefur verið hægt að meta mestu notkun nagla yfir veturinn og sjá þróunina þegar skipt er yfir á sumardekk,“ segir á vef bæjarins.

Síðastliðinn föstudag var settur upp búnaður til að telja fjölda og reikna út hlutfall bíla sem eru á nagladekkjum á Akureyri. Teljarinn var settur upp við gangbraut yfir Hlíðarbraut milli Hlíðarfjallsvegar og Merkigils.

Um tilraunaverkefni er að ræða og er fjöldi og hlutfall bíla á nagladekkjum metið út frá hljóði. Myndavélar láta tölvuna vita að bíll sé að nálgast fyrir hljóðgreiningu. Við þessa greiningu eru engin persónugreinanleg gögn vistuð.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!