Norðursigling fær sekt fyrir villandi markaðssetningu

Fyrirtækið Norðursigling ehf. á yfir höndum sér 500.000 króna stjórnvaldasekt eftir ákvörðun Neytendastofu. Fyrirtækið er ákært fyrir að hafa brotið gegn ákvörðun Neytendastofu frá 8. febrúar 2017.

Ákveðið var að banna skildi notkun myndmerkis og textans „Car­bon Neutral“ í markaðssetn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Það þótti vill­andi fyr­ir neyt­end­ur og ósann­gjarnt gagn­vart keppi­naut­um. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu. Gögn málsins sýna að fyrirtækið notast enn víða við hugtakið „Carbon Neutral“ í markaðssetningarefni rúmum fimm mánuðum frá ákvörðun Neytendastofu.

Úr­bæt­ur Norður­sigl­ing­ar á markaðssetn­ing­ar­efni fyr­ir­tæk­is­ins þóttu því ófull­nægj­andi. Taldi Neyt­enda­stofa því nauðsyn­legt að leggja stjórn­valds­sekt á fyr­ir­tækið. Norðursigling hefur fjórar vikur til að kæra ákvörðun stofnunarinnar til áfrýjunarnefndar neytendamála.

Ákvörðun­ Neytendastofu má lesa í heild sinni hér.

Sjá einnig:

Magnað myndband úr hvalaskoðun á Húsavík

Sambíó

UMMÆLI