NTC

Norðurlandsúrval kvenna í vel heppnaðri DanmerkurferðHópurinn. Mynd: thorka.is

Norðurlandsúrval kvenna í vel heppnaðri Danmerkurferð

Í liðinni viku héldu 18 fótboltastelpur af Norðurlandi á aldrinum 15-16 ára ásamt fararstjórum og þjálfurum til Danmerkur til að æfa og reyna sig gegn jafnöldrum sínum. Flogið var til Kaupmannahafnar beint frá Akureyri með Niceair á sunnudegi.

Þátttakendur komu frá Þór/KA, Tindastóli, Hvöt, Umf. Fram og Völsungi. Hópurinn var valinn í framhaldi af landshlutaæfingum vetrarins, afreksæfingum á landsbyggðinni sem eru hluti af afreksstefnu KSÍ.

Stelpurnar fengu rausnarlegan stuðning frá fjölmörgum fyrirtækjum á Norðurlandi til að gera þessa ferð mögulega og vilja koma á framfæri kæru þakklæti til þeirra fyrir stuðninginn.

Á mánudag æfðu stelpurnar á æfingasvæði Bröndby í Kaupmannahöfn, en að auki höfðu verið skipulagðir tveir æfingaleikir við U16 lið tveggja danskra félagsliða. Leikið var gegn FC Nordsjelland á þriðjudeginum, spilaðar 2×40 mínútur og svo gegn Bröndby á miðvikudeginum þar sem spilaðar voru 3×30 mínútur.

Leikurinn gegn FC Nordsjelland var jafn, hraður og skemmtilegur og það að fá að spila á aðalvelli félagsins gerði upplifunina enn sterkari og skemmtilegri. Norðurlandsúrvalið sigraði lið FC Nordsjelland, 1-0, og var það Elísa Bríet Björnsdóttir sem skoraði markið.

Leikurinn gegn Bröndby var lengri í heildina, skipt í þrjá þrjátíu mínútna leikhluta. Heimaliðið komst yfir í öðrum leikhlutanum, en stelpurnar í Norðurlandsúrvalinu svöruðu strax með marki og svo fljótlega öðru marki í þeim leikhluta. Í þriðja leikhluta höfðu þær mikla yfirburði, bara eitt lið á vellinum, og þá bættu þær við þremur mörkum. Mörkin skoruðu Birgitta Rún Finnbogadóttir, Rebekka Sunna Brynjarsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Katla Guðný Magnúsdóttir og Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir.

Þjálfarar í ferðinni voru Ágústa Kristinsdóttir frá Þór/KA og Þórólfur Sveinsson frá Tindastóli, auk þess sem Runólfur Trausti Þórhallsson, markvarðaþjálfari hjá akademíu FCK, var þeim innan handar, bæði á æfingunum og í leikjunum. Fararstjórar í ferðinni voru Erla Ormarsdóttir og Ragnar Már Þorgrímsson.

Þessi ferð og sams konar ferð drengja af Norðurlandi sem farin var viku áður og sagt hefur verið frá eru skemmtileg leið til að fjölga áhugaverðum og spennandi verkefnum fyrir ungt knattspyrnufólk af Norðurlandi. Að sögn fararstjóra og þjálfara var ferðin skemmtileg og bætti miklu við í reynslu- og ekki síður minningabankann hjá stelpunum – og væntanlega þjálfurum og fararstjórum einnig.

Hópurinn í stafrófsröð:
Birgitta Rún Finnbogadóttir
Elísa Bríet Björnsdóttir
Elísabet Ingvarsdóttir
Elísabet Nótt Guðmundsdóttir
Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
Halla Bríet Kristjánsdóttir
Hildur Anna Birgisdóttir
Hulda Þórey Halldórsdóttir
Ísey Ragnarsdóttir
Karlotta Björk Andradóttir
Katla Bjarnadóttir
Katla Guðný Magnúsdóttir
Klara Parraguez Solar
Kolfinna Eik Elínardóttir
Nína Rut Arnardóttir
Rebekka Sunna Brynjarsdóttir
Sigríður H. Stefánsdóttir
Tinna Sverrisdóttir

Tíu af þessum 18 stelpum koma úr 3. flokknum hjá Þór/KA, þær Emelía, Hildur Anna, Ísey, Karlotta Björk, Katla, Klara, Kolfinna Eik, Nína Rut, Rebekka Sunna og Tinna.

Umfjöllun af vef thorka.is þar sem má sjá fleiri myndir úr ferðinni.

VG

UMMÆLI

Sambíó