Arkitektastofan Nordic Office of Architecture hlýtur fyrstu verðlaun í samkeppni um hönnun á nýjum stúdentagörðum fyrir Félagsstofnun stúdenta Akureyri (FÉSTA). Samkeppnin var auglýst 16. október 2023 og var unnin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Skilafrestur tillagna var til 25. janúar sl. og bárust ellefu tillögur innan settra tímamarka.
Áform eru um verulega stækkun stúdentagarðanna á Akureyri. Reistar verða þrjár byggingar innan svæðis Háskólans á Akureyri. Alls verða þær með 61 íbúð, þar af 40 tveggja herbergja íbúðum og 21 stúdíóíbúð. Einnig verða einstaklingsherbergi í húsunum, alls 64.
Búsetuþarfir stúdenta við HA hafa verið að breytast á síðustu árum og hefur framboð húsnæðis hjá Félagsstofnun Stúdenta Akureyri (FÉSTA) ekki náð að fylgja eftir þeirri þróun. Eftirspurnin hefur mest verið eftir minni íbúðum s.s. stúdíó íbúðum, 2ja herbergja íbúðum og einstaklingsherbergjum. Á grundvelli könnunar og greiningarvinnu FÉSTA var niðurstaðan sú að þörf væri á að FÉSTA myndi auka framboð sitt á minna húsnæði og húsnæði sem uppfyllti nútíma kröfur.
Í framhaldi af því efndi FÉSTA í samstarfi við Arkitektafélag Íslands til opinnar framkvæmdarsamkeppni um hönnun á nýjum stúdentagörðum innan háskólasvæðis Háskólans á Akureyri (HA). Meginmarkmið samkeppninnar er að fá tillögu sem gerir FÉSTA kleift að byggja bjartar og aðlaðandi íbúðir í góðu samræmi við húsnæðisþarfir nemenda HA.
Dómnefndin var sammála um að innsendar tillögur hafi verið fjölbreyttar og úrlausnir tillöguhöfunda ólíkar og margar áhugaverðar. Fjórar tillögur skáru sig úr með að svara áherslum dómnefndar á heildstæða byggingarlist, innra skipulag og lóðarfrágang.
Dómnefndin þakkar keppendum fyrir þátttökuna.
Megináherslur dómnefndar
- Að tillagan sé heildstæð og byggi á vandaðri byggingarlist
- Að gæði, notagildi og fyrirkomulag endurspegli framsækna hönnun
- Að ásýnd bygginganna og lóða falli vel að nánasta umhverfi
- Að aðgengis- og öryggismál séu vel leyst
- Að hönnun hvetji til félagslegrar virkni íbúa
- Að horft sé til umhverfisáhrifa bygginganna og vistvænnar hönnunar
- Að byggingarefni og lausnir uppfylli kröfur um hagkvæmni og góða endingu
UMMÆLI