Síðastliðinn laugardag var nóg um að vera á Akureyrarflugvelli og starfsfólk vallarins hafði í nógu að snúast. Flogið var beint frá Akureyri til þriggja áfangastaða ásamt því að Icelandair sinnti áætlunarflugi sínu.
Flogið var til Amsterdam með flugvél Transavia og þá flaug easyJet til Gatwick og Manchester. Úrkoma var allan daginn og því einnig nóg að gera hjá Flugvallarþjónustunni við snjóhreinsun.
Akureyrarflugvöllur hefur birt myndir á Facebook síðu sinni sem má skoða með því að smella hér.
UMMÆLI