Amtsbókasafnið á Akureyri hefur gefið út nokkrar skemmtilegar tölur frá starfseminni fyrir árið 2024. Sem dæmi má nefna að útlánum og heimsóknum fjölgaði á Amtsbókasafninu miðað við árið 2023.
„Þó að margir haldi að bókasöfn sé lítið notuð og lestur sé að minnka sjáum við þetta ekki svo svart og erum bara bjartsýn fyrir framtíðinni. Skemmtilegt þótti okkur að sjá að kökuformin okkar lánuðust úr 270 sinnum, enda er heimsókn á bókasafnið orðinn hefðbundinn liður í kringum veislur hjá mörgum. Mikil stemning að velja form fyrir afmælið sitt,“ segir Dagný Davíðsdóttir, verkefnastjóri viðburða og kynningarmála hjá Amtsbókasafninu.
„Hlutverk bókasafnsins er í senn hefðbundið en í leiðinni alltaf að þróast með nýjum tímum. Við erum alltaf að bæta við okkur óhefðbundnum útlánum og núna í janúar bættust fjölbreyttir heilsutengdir hlutir við safnkostinn okkar. Þar ber að nefna allskonar lóð og æfingateygjur, blóðþrýstingsmælir, frisbígolfsett, kíkir og fleira skemmtilegt.“
Hér eru áhugaverðar tölur um Amtsbókasafnið árið 2024:
- Gestir safnsins voru 88.562 yfir árið 2024. Það er aukning um 6.000 gesti milli ára.
- Árið 2024 voru 3.569 manns sem notuðu kortið sitt á Amtsbókasafninu.
- Útlán hjá þessum aðilum voru 106.483 og eru það um 370 fleiri lán en árið áður.
- 106.483 bækur eru eins og 47 Akureyrarkirkjur, eða 1,7 Súlur að hæð.
- Með kökuformunum voru bakaðar 270 kökur á Akureyri árið 2024
- Eins voru barnaafmælissettin lánuð 19 sinnum.
- Mest lánuðu spilin voru jöfn Catan – landnemarnir, Harry Potter Cluedo og Dixit.
- Mest lánaða fjölskyldumyndin var Ruby Gillman: teenage kraken
- Oppenheimer var vinsælasta kvikmynd síðasta árs og Barbie í öðru sæti
- Heyrnatól og hleðslutæki til notkunar innanhúss nýttu gestir sér í 315 skipti á árinu
- Vinsælasta tímaritið var Vikan en hún var lánuð í 933 skipti
- 100 vinsælustu bækur safnsins eru allt skáldsögur:
- Vinsælasta barnabókin var Kiddi klaufi – Rokkarinn reddar öllu
- Vinsælasta ungmennabókin var Hjartastopp 1
- Vinsælasta rómantíska skáldsagan var Og nú ertu kominn aftur, sem var jafnframt vinsælasta bók safnsins á árinu
- Vinsælasta glæpasagan var Banvænn fundur
- Vinsælasta skáldsagan utan þessara flokka var Lykillinn
UMMÆLI