Níu hljóta framgang í starfi hjá HA

Akademískt starfsfólk Hákólans á Akureyri getur árlega sótt um framgang í starfi. Mat á umsóknum er í höndum dómnefndar háskólans og byggir mat dómnefndar á heildstæðu faglegu mati á frammistöðu og árangri í rannsóknum, kennslu, stjórnun og þjónustu í þágu háskólans og samfélagsins í samræmi við reglur háskólans þar að lútandi. Í framhaldi ákveður rektor á grundvelli dómnefndarálits hvort veita skuli framgang í starfi. Greint er frá á vef HA, unak.is
Níu fengu framgang í starfi í ár:
Á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði:
Dr. Cynthia Thúy Ðinh hlýtur framgang í stöðu dósents við Viðskiptadeild
Dr. Kjartan Sigurðsson hlýtur framgang í stöðu dósents við Viðskiptadeild
Dr. Nanna Ýr Arnardóttir hlýtur framgang í stöðu dósents við Hjúkrunarfræðideild
Dr. Sigríður Sía Jónsdóttir hlýtur framgang í stöðu prófessors við Hjúkrunarfræðideild
Dr. Than Viet Nguyen hlýtur framgang í stöðu prófessors við Auðlindadeild
Á Hug- og félagsvísindasviði:
Dr. Andrea Hjálmsdóttir hlýtur framgang í stöðu dósents við Félagsvísindadeild
Dr. Eyrún Eyþórsdóttir hlýtur framgang í stöðu dósents við Félagsvísindadeild
Dr. Guðmundur T. Heimisson hlýtur framgang í stöðu dósents við Sálfræðideild
Dr. Kristinn Már Ársælsson framgangur við nýráðningu í stöðu dósents við Félagsvísindadeild
„Háskólinn á Akureyri óskar þessu starfsfólki innilega til hamingju með framganginn og árangur í starfi,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










