MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Niðurstöður hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík kynntar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screen Shot 2020-05-14 at 12.01.28
kaffid.is

Í dag, 14. maí, kl 15:00, verður beint streymi frá verðlaunaathöfn hönnunarsamkeppni um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnir verðlaunatillöguna og veitir viðurkenningar. Allir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með útsendingunni sem verður í streymi á YouTube-rás Þekkingarnets Þingeyinga.

Fyrirhugað er að nýtt og glæsilegt 60 eininga hjúkrunarheimili rísi í hlíðinni ofan Dvalarheimilisins Hvamms. Áætlað er að framkvæmdir hefjist sumarið 2021 og að þeim ljúki í lok árs 2023. Alls bárust 32 tillögur í hönnunarsamkeppnina og hefur dómnefnd skipuð fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins, sveitarfélaganna sem standa að uppbyggingunni og fulltrúum frá Arkítektafélagi Íslands nú lokið störfum. Verkkaupar eru heilbrigðisráðuneytið, Norðurþing, Skútustaðahreppur, Þingeyjarsveit og Tjörneshreppur.

Tilkynnt verður um vinningstillöguna og viðurkenningar veittar fyrir aðrar áhugaverðar tillögur sem bárust í keppnina. Í kjölfar verðlaunaafhendingarinnar verður yfirlit yfir tillögur og niðurstöður dómnefndar aðgengilegar á heimasíðum Arkítektafélags Íslands, Ríkiskaupa, Framkvæmdasýslu ríkisins, heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélaganna Norðurþings, Skútustaðahrepps, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveitar.

  • Slóð að streymi frá viðburðinum í dag kl. 15: https://www.youtube.com/channel/UCqWtFCdJdiZPuqAMiBqgEcQ
  • Sjá einnig á Facebook: https://www.facebook.com/events/257718582252657/

Tengdar greinar

Uppfært: 24. apríl 2026