Nicole Kidman á Akureyri
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Ástralsk-bandaríska stórleikkonan Nicole Kidman heimsótti Akureyri í gær ef marka má Instagram-færslu hennar. Nicole birti mynd af sér í miðbæ Akureyrar á samfélagsmiðlinum þar sem hún er með yfir 11 milljónir fylgjenda.
Nicole Kidman lék Guðrúnu í kvikmyndinni Northman sem var tekin upp á Íslandi og kom út árið 2022. Í færslunni sem Kidman birti á Instagram á sjöunda tímanum í gær segir: „Með kærleikskveðju frá Íslandi“ eða á ensku „With love, from Iceland“.
Hún fékk að sjálfsögðu gott veður á Akureyri, sólskin og 19 gráður.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










